Íslandsmeistaramót EFSA Íslands 2014 í strandveiði - úrslit |
Skrifað af Helgi Bergsson |
Sunnudagur, 31 Ágúst 2014 16:42 |
Íslandsmeistaramót EFSA Íslands í strandveiði 2014 var haldið laugardaginn 30. ágúst frá Skarðsvík, Snæfellsnesi með fjórum keppendum. Vegna veðurs varð að fella niður keppnina seinni daginn eða á sunnudeginu 31. ágúst, en þess í stað var veitt allan fyrri daginn í átta tíma. Þrjár tegundir veiddust; ufsi, flundra og sandkoli. Stærsti fiskur mótsins var ufsi 45 cm, veiðimaður Reynir Halldórsson. Nýtt met var slegið, flundra 44 cm að lengd og 24 cm breidd, og þyngdin 0,890 kg. Veiðimaður Helgi Bergsson.
Íslandsmeistari EFSA Íslands 2014 í strandveiði varð Helgi Bergsson með 310 stig en röð keppenda var þessi:
Helgi Bergsson 310 stig
Reynir Halldórsson 240 stig
Ævar Einarsson 175 stig
Paul Fawcett 130 stig
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 31 Ágúst 2014 16:43 |