|
Íslandsmeistaramót EFSA 2012
Patreksfjörður 11.-12. maí bátakeppni
Íslandsmeistaramót EFSA Ísland í sjóstöng í bátakeppni verður haldið frá Patreksfirði föstudaginn 11. maí og laugardaginn 12. maí. Mótið er stigamót og keppt um Íslandsmeistara EFSA Ísland 2012. Veitt er eftir reglum EFSA (Evrópusamband sjóstangaveiðimanna).
Veitt verða verðlaun fyrir stærsta fisk hverrar tegundar, flestar tegundir og stigahæstu einstaklinga karla og kvenna í 1. 2. og 3. sætið. Skipstjórar á þremur stigahæstu bátunum fá einnig verðlaun.
Dagskrá
Fimmtudagur 10. maí
kl. 20:00 Mótssetning á Patreksfirði. Veitingarhúsið Þorpið.
Mótsgögn afhent og farið verður yfir reglur og framkvæmd mótsins
Föstudagur 11. maí
kl. 06:30 Keppendur mæta á bryggju
kl. 07:00 Lagt úr höfn
kl. 08:00 Veiðar hefjast
kl. 14:00 Veiðum hætt
kl. 16:00 Bátar skulu vera komnir að bryggju
kl. 18:00 Úrslit kynnt á stigatöflu
Laugardagur 12. maí
kl. 06:30 – 18:00 Sama og föstudag
kl. 20:00 Verðlaunaafhending
kl. 21:00 Lokahóf - veitingarhúsið Þorpið.
Keppnisgjald er 22.000 kr. Innifalið í þátttökugjaldi er keppnin í tvö daga og miði á lokahóf fyrir einn. Styrkur á mótið til félaga EFSA Íslands er 11.000 kr. Aukamiði á lokahófið kostar 4.500 kr. Skráning hjá Þóri Sveinsson í síma 896 3157 eða í netfangi
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Skráningarfrestur er til fimmtudagsins 26. apríl 2012.
Mótsstjórn skipa Skarphéðinn Ásbjörnsson og Þórir Sveinsson.
European Shore Fishing Championship 24.—29. September 2012 Akureyri North Iceland.
Important notice to those who are looking for accomodation at the hotel were the Headquarters will be.
The booking engine on the Hotel webpage "www.countryhotels.is"does not allow booking for the period of the Championship. This is because of the hotel is giving EFSA members special price. Pleace send your inquiries by email directly to
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|