Home Fréttir Úrslit í strandveiðimóti EFSA Íslands 2016. Results for EFSA Iceland Open Shore Championship 2016.
Úrslit í strandveiðimóti EFSA Íslands 2016. Results for EFSA Iceland Open Shore Championship 2016. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Þriðjudagur, 16 Ágúst 2016 19:44

Þriðja strandveiðimót EFSA Íslands af þremur til Íslandsmeistara 2016 var haldið laugardaginn 13. ágúst og sunnudaginn 14. ágúst með þátttöku fimm keppenda. Keppt var eftir veiðireglum EFSA og leyft að veiða með þremur krókum. Fyrri daginn var veitt frá Skarðsvík, Snæfellsnesi frá kl. 15:00 til kl. 20:00. Alls veiddust fyrri daginn 50 fiskar af þremur tegundum; þorskur, ufsi og flundra. Seinni daginn var veitt frá Mávahlíð, nærri Ólafsvík frá kl. 10:00 til 15:00 og veiddust þá 38 fiskar af tveimur tegundum; sandkoli og flundra. Fyrri daginn var veðrið sæmilegt, smá gola en sólarglæta. Seinni daginn var rigning eða súld með sunnanstrekkingi og veiddust þá 38 fiskar. Úrslit urðu þau að Helgi Bergsson varð í fyrsta sæti með 8 stig, 27 fiska og 770 aflastig. Reynir Halldórsson varð í öðru sæti með 7 stig, 20 fiska og 632 aflastig. Paul Fawcett varð í þriðja sæti með 5 stig, 18 fiska og 565 aflastig. Helgi Bergsson veiddi stærsta fisk mótsins, þorsk sem var 57 cm. að lengd. Stærsta flatfiskinn, flundru sem var 41 cm. að lengd, veiddi Reynir Halldórsson.

Úrslit í heildarkeppninni til Íslandsmeistara EFSA í strandveiði 2016 (þrjú mót og sex veiðidagar) urðu þau að Helgi Bergsson varð Íslandsmeistari með samtals 30 stig, 250 fiska og 9453 aflastig. Í öðru sæti varð Steve Mason með samtals 27 stig, 228 fiska og 8954 aflastig. Í þriðja sæti varð Reynir Halldórsson með samtals 19 stig, 167 fiska og 6461 aflastig.

English

EFSA Iceland Open Shore Championship 2016 part three of three was held Saturday 13th August and Sunday 14th August from Snæfellsnes, West-Iceland with five anglers. The Championship was fished by EFSA rules, five hours of fishing each day and three hooks allowed. Total catch was 88 fish mostly Flounder but also Dab, Cod and Coalfish.

Results: Helgi Bergsson in the first place with 8 points and 27 fish, Reynir Halldorsson in the second place with 7 points and 20 fish and Paul Fawcett in the third place with 5 points and 18 fish. The biggest fish was a Cod of 57 cm, angler Helgi Bergsson. Reynir Halldorsson fished the biggest flatfish a Flounder of 41 cm.

Total result in the three parts (six days of fishing) in EFSA Iceland Open Shore Championship 2016: Helgi Bergsson in the first place with 30 points and 250 fish, Steve Mason in the second place with 27 points and 228 fish and Reynir Halldorsson in the third place with 19 points and 167 fish.

 
EFSA Iceland
Afritunarréttur © 2024 EFSA Iceland. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.