Home Fréttir Strandveiðimót EFSA Íslands 2017. EFSA Iceland Open Shore Championship 2017.
Strandveiðimót EFSA Íslands 2017. EFSA Iceland Open Shore Championship 2017. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Þriðjudagur, 22 Ágúst 2017 20:16

Annar hluti strandveiðimóts EFSA Íslands af þremur til Íslandsmeistara 2017 var haldið laugardaginn 19. ágúst og sunnudaginn 20. ágúst með þátttöku fjögurra keppenda. Keppt var eftir veiðireglum EFSA og leyft að veiða með þremur krókum. Fyrri daginn var veitt frá Þykkvabæjarfjöru og seinni daginn frá Sandvík á Reykjanesi. Alls veiddust 324 fiskar af fimm tegundum; sandkoli, þorskur, ýsa, lýsa og háfur. Báða dagana var veðrið gott, sól og blíðviðri. Úrslit urðu þau að Steve Mason varð í fyrsta sæti með 8 stig, 86 fiska og 4360 aflastig. Reynir Halldórsson varð í öðru sæti með 6 stig, 98 fiska og 3743 aflastig. Paul Fawcett varð í þriðja sæti með 3 stig, 62 fiska og 2422 aflastig. Steve Mason veiddi stærsta fisk mótsins, háf sem var 87 cm. að lengd. Stærsta flatfiskinn, kola sem var 42 cm. að lengd veiddi Reynir Halldórsson. Tvö Íslandsmet voru sett í mótinu, háfur 87 cm. að lengd veiðimaður Steve Mason og lýsa 49 cm. að lengd veiðimaður Þórir Sveinsson.

Fyrsti hluti strandveiðimótsins til Íslandsmeistara var haldið frá Siglufirði og Akureyri dagana 8. og 9. júlí sl. með þátttöku fimm keppenda. Alls veiddust 431 fiskur af fimm tegundum; sandkoli, þorskur, skrápflúra, rauðspretta og sjóbleikja. Úrslit urðu þau að Reynir Halldórsson varð í fyrsta sæti með 9 stig, 114 fiska og 4700 aflastig. Helgi Bergsson varð í öðru sæti með 9 stig, 115 fiska og 4562 aflastig. Paul Fawcett varð í þriðja sæti með 5 stig, 81 fisk og 3266 aflastig. Sjóbleikjan, sem Reynir Halldórsson veiddi, er nýtt Íslandsmet.

Tímasetning og staðsetning þriðja og síðasta hluta strandveiðimótsins til Íslandsmeistara verður ákveðin síðar, væntanlega í september nk.

English version.

EFSA Iceland Open Shore Championship 2017 part one of three was held on 8th and 9th July from Siglufjordur and Akureyri, North-Iceland with five anglers. The Championship was fished by EFSA rules, five hours of fishing each day and three hooks allowed. Total catch was 431 fish mostly Dab but also Cod, Plaice, Rough Dab and Arctic char. Part two was held on 19th and 20th August from Thykkvabae, South Iceland and Sandvik near Keflavik, South-West Iceland with four anglers. Total catch was 324 fish mostly Dab but also Whiting, Cod, Haddock and Spurdog. EFSA Iceland‘s last Shore Championship this summer will be held in September.

 
EFSA Iceland
Afritunarréttur © 2024 EFSA Iceland. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.