Home Fréttir Strandveiðimót EFSA Íslands 2017. EFSA Iceland Shore Championship 2017.
Strandveiðimót EFSA Íslands 2017. EFSA Iceland Shore Championship 2017. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Sunnudagur, 24 September 2017 13:16

Þriðji hluti strandveiðimóts EFSA Íslands af þremur til Íslandsmeistara 2017 var haldið laugardaginn 16. september og sunnudaginn 17. september með þátttöku fjögurra keppenda. Keppt var eftir veiðireglum EFSA og leyft að veiða með þremur krókum. Fyrri daginn var veitt í höfninni í Þorlákshöfn og seinni daginn frá Norðurbryggju í Hafnarfirði. Alls veiddust 500 fiskar af sjö tegundum; sandkoli, þorskur, lýsa, flundra, rauðspretta, marhnútur og tindabikkja. Báða dagana var suðaustan strekkingur og rigningarskúrir. Úrslit urðu þau að Steve Mason varð í fyrsta sæti með 8 stig, 145 fiska og 4945 aflastig. Reynir Halldórsson varð í öðru sæti með 5 stig, 127 fiska og 4472 aflastig. Þórir Sveinsson varð í þriðja sæti með 4 stig, 114 fiska og 4001 aflastig. Reynir Halldórsson veiddi stærsta fisk mótsins, þorsk sem var 52 cm. að lengd. Stærsta flatfiskinn, kola sem var 37 cm. að lengd veiddi, Steve Mason.

Á strandveiðimótunum í sumar sem haldin voru frá Siglufirði, Akureyri, Þykkvabæ, Sandvík á Reykjanesi, Þorlákshöfn og Hafnarfirði, veiddust alls 1255 fiskar af ellefu tegundum; sandkoli, lýsa, þorskur, ýsa, flundra, tindabikkja, skrápflúra, rauðspretta, marhnútur, sjóbleikja og háfur.

Þrjú Íslandsmet voru sett á strandveiðimótunum; sjóbleikja 60 cm. að lengd veiðimaður Reynir Halldórsson, háfur 87 cm. að lengd veiðimaður Steve Mason og lýsa 49 cm. að lengd veiðimaður Þórir Sveinsson.

Íslandsmeistari EFSA Íslands í strandveiði 2017 varð Steve Mason með 21 veiðistaðarstig (zone), 12.492 aflastig og 331 fisk. Í öðru sæti varð Reynir Halldórsson með 20 veiðistaðarstig 12.915 aflastig og 339 fiska. Í þriðja sæti varð Paul Fawcett með 11 veiðistaðarstig, 9.706 aflastig og 257 fiska.

English version.

EFSA Iceland Shore Championship 2017 part three of three was held on 16th and 17th September from Thorlakshofn and Hafnarfjorður, South West-Iceland with four anglers. The Championship was fished by EFSA rules, five hours of fishing each day and three hooks allowed. Total catch was 500 fish mostly Dab but also Cod, Plaice, Whiting, Starry Ray, Flounder and Scorpion fish.

EFSA Iceland Shore 2017 was held from six places in north, south and south west Iceland; Siglufjordur, Akureyri, Thykkvabae, Sandvik, Thorlakshofn and Hafnarfjordur. The total catch was 1255 fish and 11 species; Dab, Cod, Haddock, Rough dab, Plaice, Whiting, Starry Ray, Flounder, Spur dog, Scorpion fish and Arctic char. Three EFSA Iceland record were registered; Arctic char of 60 cm, Spur dog of 87 cm. and Whiting of 49 cm.

EFSA Iceland Shore Champion 2017 was Steve Mason with 21 zone points, 12.492 fishpoints and 331 fish. In the second place was Reynir Halldórsson with 20 zone points, 12.915 fishpoints og 339 fish. In the third place was Paul Fawcett with 11 zone points, 9.706 fishpoints and 257 fish.

 
EFSA Iceland
Afritunarréttur © 2024 EFSA Iceland. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.