Aðalfundur EFSA 2017. EFSA Iceland AGM 2017. |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
Þriðjudagur, 31 Janúar 2017 20:08 |
Aðalfundur EFSA Ísland verður haldinn laugardaginn 25. febrúar 2017 að Baldursgötu 14, 2. hæð, Reykjavík (fyrir ofan veitingarhúsið “Þrír frakkar”), og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar.
Reikningar liðins starfsárs.
Kosning stjórnar.
Ákvörðun um árgjald.
2. Önnur mál.
Styrkir til þátttöku í EFSA Evrópumótum 2017.
Erlend EFSA Evrópumót 2017.
EFSA Ísland. Íslandsmeistaramót, innanfélagsmót og strandveiðimót 2017.
Evrópumótið í báta- og línukeppni 2018 á Íslandi.
Inntaka nýrra félaga.
Annað.
EFSA Iceland´s AGM will be held on Saturday 25th February 2017 at the restaurant „Þrír frakkar“ at Baldursgata 14, Reykjavik, 2nd floor.
Agenda:
-
General AGM matters.
The Chairman’s welcome.
Report for 2016.
Approval of the audited accounts.
Election of EFSA Iceland Board.
Annual membership fee.
-
Other matters.
Sponsorship - EFSA Championships in 2017.
EFSA Championships in 2017.
EFSA Iceland Championships in 2017.
European Boat & Line Championships 2018 in Iceland.
New members.
Other.
|
Úrslit í strandveiðimóti EFSA Íslands 2016. Results for EFSA Iceland Open Shore Championship 2016. |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
Þriðjudagur, 16 Ágúst 2016 19:44 |
Þriðja strandveiðimót EFSA Íslands af þremur til Íslandsmeistara 2016 var haldið laugardaginn 13. ágúst og sunnudaginn 14. ágúst með þátttöku fimm keppenda. Keppt var eftir veiðireglum EFSA og leyft að veiða með þremur krókum. Fyrri daginn var veitt frá Skarðsvík, Snæfellsnesi frá kl. 15:00 til kl. 20:00. Alls veiddust fyrri daginn 50 fiskar af þremur tegundum; þorskur, ufsi og flundra. Seinni daginn var veitt frá Mávahlíð, nærri Ólafsvík frá kl. 10:00 til 15:00 og veiddust þá 38 fiskar af tveimur tegundum; sandkoli og flundra. Fyrri daginn var veðrið sæmilegt, smá gola en sólarglæta. Seinni daginn var rigning eða súld með sunnanstrekkingi og veiddust þá 38 fiskar. Úrslit urðu þau að Helgi Bergsson varð í fyrsta sæti með 8 stig, 27 fiska og 770 aflastig. Reynir Halldórsson varð í öðru sæti með 7 stig, 20 fiska og 632 aflastig. Paul Fawcett varð í þriðja sæti með 5 stig, 18 fiska og 565 aflastig. Helgi Bergsson veiddi stærsta fisk mótsins, þorsk sem var 57 cm. að lengd. Stærsta flatfiskinn, flundru sem var 41 cm. að lengd, veiddi Reynir Halldórsson.
Úrslit í heildarkeppninni til Íslandsmeistara EFSA í strandveiði 2016 (þrjú mót og sex veiðidagar) urðu þau að Helgi Bergsson varð Íslandsmeistari með samtals 30 stig, 250 fiska og 9453 aflastig. Í öðru sæti varð Steve Mason með samtals 27 stig, 228 fiska og 8954 aflastig. Í þriðja sæti varð Reynir Halldórsson með samtals 19 stig, 167 fiska og 6461 aflastig.
English
EFSA Iceland Open Shore Championship 2016 part three of three was held Saturday 13th August and Sunday 14th August from Snæfellsnes, West-Iceland with five anglers. The Championship was fished by EFSA rules, five hours of fishing each day and three hooks allowed. Total catch was 88 fish mostly Flounder but also Dab, Cod and Coalfish.
Results: Helgi Bergsson in the first place with 8 points and 27 fish, Reynir Halldorsson in the second place with 7 points and 20 fish and Paul Fawcett in the third place with 5 points and 18 fish. The biggest fish was a Cod of 57 cm, angler Helgi Bergsson. Reynir Halldorsson fished the biggest flatfish a Flounder of 41 cm.
Total result in the three parts (six days of fishing) in EFSA Iceland Open Shore Championship 2016: Helgi Bergsson in the first place with 30 points and 250 fish, Steve Mason in the second place with 27 points and 228 fish and Reynir Halldorsson in the third place with 19 points and 167 fish. |
Strandveiðimót EFSA Íslands 2016. EFSA Iceland Open Shore Championship 2016. |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
Sunnudagur, 07 Ágúst 2016 08:47 |
Þriðji hluti strandveiðimóts EFSA Íslands og lokamót til Íslandsmeistara 2016 verður haldið laugardaginn 13. ágúst frá Snæfellsnesi frá kl. 15:00 til kl. 20:00 og sunnudaginn 14. ágúst einnig frá Snæfellsnesi frá kl. 9:00 til kl. 14:00. Keppt verður eftir veiðireglum EFSA og leyft að veiða með þremur krókum. Frítt er í mótið fyrir félaga í EFSA. Þátttaka í mótið tilkynnist fyrir kl. 18:00 þriðjudaginn 9. ágúst til Paul Fawcett í síma 893 2362/netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða til Þóris Sveinssonar í síma 896 3157/netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
English version.
EFSA Iceland Open Shore Championship 2016 part three of three will be held Saturday 13th August from Snæfellsnes, West-Iceland from 15:00 to 20:00 and Sunday 14th August also from Snæfellsnes from 09:00 to 14:00. The Championship will be fished by EFSA rules, five hours of fishing each day and three hooks allowed. No entry fee for members of EFSA. Registation before 26th July to Paul Fawcell tel. +354 893 2362/e-mail:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
or to Thorir Sveinsson tel +354 896 3157/e-mail:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. |
Strandveiðimót EFSA Íslands 2016. EFSA Iceland Open Shore Championship 2016. |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
Þriðjudagur, 02 Ágúst 2016 21:01 |
Annað strandveiðimót EFSA Íslands af þremur til Íslandsmeistara 2016 var haldið laugardaginn 30. júlí og sunnudaginn 31. júlí með þátttöku sjö keppenda. Keppt var eftir veiðireglum EFSA og leyft að veiða með þremur krókum. Fyrri daginn var veitt frá Togarabryggjunni, Akureyri frá kl. 15:00 til kl. 20:00. Alls veiddust fyrri daginn 226 fiskar af sex tegundum; sandkoli, þorskur, ufsi, lúða, steinbítur og marhnútur. Seinni daginn var veitt frá Hjalteyri, Eyjafirði frá kl. 12:00 til 17:00 og veiddust þá 200 fiskar af sjö tegundum; sandkoli, þorskur, ufsi, lúða, rauðspretta, skrápflúra og marhnútur. Báða dagana var veðrið gott, sól og blíðviðri, en smá gola fyrri daginn. Úrslit urðu þau að Steve Mason varð í fyrsta sæti með 13 stig, 121 fisk og 5044 aflastig. Helgi Bergsson varð í öðru sæti einnig með 13 stig, 103 fiska og 4319 aflastig. Paul Fawcett varð í þriðja sæti með 9 stig, 57 fiska og 2399 aflastig. Skarphéðinn Ásbjörnsson veiddi stærsta fisk mótsins, steinbít sem var 62 cm. að lengd, en einnig þorsk sem var 62 cm. að lengd. Stærsta flatfiskinn, lúðu sem var 57 cm. að lengd veiddi Helgi Bergsson. Þriðja og síðasta strandveiðimótið til Íslandsmeistara verður frá Snæfellsnesi í lok ágúst eða byrjun september nk.
English version.
EFSA Iceland Open Shore Championship 2016 part two of three was held Saturday 30th July from Akureyri, North-Iceland and Sunday 31st July from Hjalteyri, near Akureyri with seven anglers. The Championship was fished by EFSA rules, five hours of fishing each day and three hooks allowed. Total cach was 426 fish mostly Dab but also Cod, Plaice, Rough Dab, Halibut, Catfish and Scorpion fish. Results: Steve Mason in the first place with 13 points, 121 fish, Helgi Bergsson in the second place with 13 points, 103 fish and Paul Fawcett in the third place with 9 points, 57 fish. The biggest fish was a Catfish of 62 cm, angler Skarphedinn Asbjornsson. Helgi Bergsson fished the biggest flatfish a Halibut of 57 cm. EFSA Iceland‘s last Shore Championship this summer will be held from Snæfellsnes, West Iceland in late August or early September.
|
|
|